Samstöðin
Avsnitt

Rauða borðið 19. ágúst - ESB, refur, vextir, áfengissala og Fjalla Eyvindur

Dela

Miðvikudagur 19. ágúst ESB, refur, vextir, áfengissala og Fjalla Eyvindur

Gunnar Smári ræðir við Bjarka Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðing um hvað veldur því að einn ætlar að segja já en annar nei út frá sömu greiningum á stöðu mála. Ester Rut Unnsteinsdóttir líffræðingur er sérfræðingur í refastofninum á Íslandi. Að auki fylgist hún með stöðu annarra spendýra, svo sem minks og fugla. Hún ræðir við Sigurjón Magnús. Ingibjörg Ottesen, manneskja úti í bæ, fer yfir Evrópumál og einnig vaxtaákvörðun Seðlabankans, sem enn hækkar vexti. Björn Þorláks ræðir við hana. Margt bendir til bakslags til langframa gagnvart lýðheilsu ekki síst ungmenna í áfengis- og vímuvarnamálum hér á landi. Björn Þorláks ræðir við Árna Guðmundsson forvarnafulltrúa. Páll Ásgeir Ásgeirsson náttúruunnandi blandar saman sólmyrkva, Fjalla Eyvindi og Evrópukosningunni í samtali við Björn Þorláks. Hann varð vitni að undri á sjó á Vestfjörðum.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Samstöðin. Innehållet i podden är skapat av Samstöðin och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.