Fimmtudagur 13. ágúst
Reynsluboltar, vinstri ESB, heilun í stríði, húsnæðismál og landsbyggðin
Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd, ræða fréttir vikunnar. Sólmyrkvinn og ESB-umræðan verða meðal umfjöllunarefna, Björn Þorláks stýrir þættinum. Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins útskýrir sína afstöðu varðandi ESB fyrir Gunnari Smára. Erla Ólafsdóttir sjúkraþjálfi vinnur með fórnarlömb stríðsins í Úkraínu. Hún ræðir við Ásdísi Olsen. Formaður Leigjendasamtakanna, Yngvi Ómar Sigrúnarson, ræðir húsnæðismál í tengslum við Evrópuumræðu Íslendinga. Björn Þorláks talar við hann. Þóroddur Bjarnason prófessor og landsbyggðasérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um áhrif aðildar að ESB á íslenskar landsbyggðir.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Samstöðin. Innehållet i podden är skapat av Samstöðin och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.