Samstöðin
Avsnitt

Rauða borðið 19. ágúst - Hvalir og kvalir, ESB: já, nei og orðræðan og tónlistarkeppnir

Dela

Þriðjudagur 18. ágúst Hvalir og kvalir, ESB: já, nei og orðræðan og tónlistarkeppnir

Rósa Líf Darradóttir læknir og hvalavinur ræðir ákvörðun Kristjáns Loftssonar að hætta að reyna að selja Japönum hvalkjöt en stefna þess í stað að framleiðslu á járnpillum. Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar ræðir við Gunnar Smára kosti og galla aðildar Íslands að ESB. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor heldur áfram umræðunni og ræðir við Gunnar Smára um Evrópusambandið og áhrif þess á aðildarríkin. Margt er skuggalegt í orðræðu Íslendinga fyrir Evrópukosninguna í lok mánaðarins. Sabine Leskopf, fyrrum borgarfulltrúi, ræðir sem innflytjandi hvernig hún upplifir sum viðhorf Íslendinga gagnvart umheiminum. Björn Þorláks ræðir við Sabine. Doktor Nína Margrét Grímsdóttir ræðir alþjóðlegar tónlistarkeppnir á Íslandi við Björn Þorláks en einni slíkri er nýlokið í Salnum í Kópavogi.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Samstöðin. Innehållet i podden är skapat av Samstöðin och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.